UNNUR 2.0
Bitra Internetmamman snýr aftur

Nokkrir punktar

2008-07-03 11:55  Blog

Ég er ánægð með verðandi ritstjóra Stúdentablaðsins og hef trú á því að blaðið eigi nú í fyrsta sinn í mörg ár möguleika á því að verða eitthvað annað en hálfvelgja.

Ég er mjög sátt við að það rigni. Það er auðveldara að skrifa í rigningu. Og ykkur til upplýsingar þá gengur vel að skrifa.

Ég er ánægð með kettina mína. Þær eru sykurmýs. Blixa hefur komið sér fyrir í gluggakistunni fyrir aftan skrifborðið mitt og liggur þar malandi mér til samlætis meðan ég skrifa. Hafmey kúrir sig á púða á gólfinu sirka meter frá mér.

Mér finnst ís góður. Í gær borðaði Hafdís með mér og svo gengum við út í ísbúð Vesturbæjar þar sem hún gerði grín að mér fyrir að hafa einfaldan smekk.

Í nótt dreymdi mig ég væri blaðberi í Frakklandi. Það sem gerði málið erfiðara var að mér til leiðbeiningar í nýrri vinnu hafði ég ekki kort heldur gamla túristahandbók og margar gatnanna höfðu frá því bókin var skrifuð og hverfið hafði byggst upp skipt um nafn.


Ekkert fyndið djók

2008-07-01 12:58  Blog

Ugh. Á síðustu opnu fréttablaðsins í dag er fávitalegt viðtal við Sigurð Eggertsson handknattleiksmann hjá Val sem er að fara til Kenýa með vinum sínum. Nú er það ekki í frásögur færandi að fólk grínist í viðtölum en grín Sigurðar er núll fyndið. Djókið hans er nefnilega að hann ætli að lækna nárameiðsli með kynlífi. Með hreinni mey nótabene. Hann hafi heyrt að nárameiðsli sé hægt að lækna með kynlífi með hreinni mey. Og hann er að fara til Afríku sko.

Ugh. Ég lagði morgunmatinn til hliðar og missti matarlystina. Rosalega fannst mér þetta ekki fyndið djók. Alveg svakalega ekki fyndið. Ég veit ekki hvort ég er pirraðri út í heimska Sigurð eða Fréttablaðið að prenta svona ósmekklegheit.

Ef þið áttið ykkur ekki á því hvað þetta er ófyndið þá getið þið lesið þessa grein. En ég lofa því ekki að ykkur líði vel á eftir. (Og mæli í raun ekki með því að þið lesið hana því hún er um afskaplega sorglega og hræðilega hluti.)


Súperdúbermamapoppkviss!

2008-06-25 23:33  Blog

Næsta föstudag munum við Íris Ellenberger sjá um poppkviss á Organ. Við Íris grilluðum í gær, drukkum bjór og sömdum spurningar. Og það er útlit fyrir fantaskemmtilegt kviss þar sem konur og transar munu verða aðalviðfangsefnið! Þið ætlið auðvitað öll að mæta, keppnin hefst klukkan sex! Rétt upp hend sem ætla að koma!!! :)


Af því ég fæ aldrei nóg af þessu vídeói

2008-06-24 11:51  Blog


Jónsmessuganga um Hengilssvæðið

2008-06-23 21:13  Blog

Ég var með nokkrar kommur á laugardaginn og í óráðinu hringdi ég í mömmu mína og stakk upp á því að við undirbyggjum Strandaferðina síðar í sumar með því að taka þátt í Jónsmessugöngu Orkuveitu Reykjavíkur um Hengilssvæðið. Mamma sagðist ekki leggja í ferðina, gangan væri að kvöldi til og hún þyrfti að vakna snemma daginn eftir. Ég slapp þó ekki svo billega því að í mamma sendi einfaldlega fulltrúa í sinn stað. Því var það að í gærkvöldi þrömmuðum við Helga móðursystir mín upp um fjöll og firnindi, eftir snarbröttum fjallshryggjum, upp á hæsta tind Hengilsins, niður í dali og fram hjá hverasvæðum. Þegar við vorum komin upp í sirka 700 metra hæð umlukti okkur þykk þoka svo að hið rómaða útsýni af Vörðu Skeggja náði ekki mikið lengra en að anorakki næsta manns. Gönguferðin hófst klukkan átta að kvöldi til og var ekki lokið fyrr en rétt fyrir tvö um nóttina. Ég svaf illilega yfir mig í vinnuna í morgun. Skemmtanagildi ferðarinnar var þrátt fyrir harðsperrur þó ótvírætt og ég hlakka til næst þegar ég kemst að ganga á fjöll.

Jónsmessuganga um Hengilssvæðið

Jónsmessuganga um Hengilssvæðið

Jónsmessuganga um Hengilssvæðið

Jónsmessuganga um Hengilssvæðið

Jónsmessuganga um Hengilssvæðið

Jónsmessuganga um Hengilssvæðið

Jónsmessuganga um Hengilssvæðið

Jónsmessuganga um Hengilssvæðið


Biturleikafjas um námsstyrki

2008-06-21 18:50  Blog

Í hvert skipti sem ég sæki um námsstyrk og fæ ekki líður mér eins og ég hafi hlotið persónulegan áfellisdóm. Ég hef í gegnum tíðina sótt um annan hvern námsstyrk sem hægt er að sækja um og ég vandaði mig sérstaklega við umsóknina sem ég sendi til Kaupþings í ár. Kaupþing hinsvegar hafði ekki einu sinni fyrir því að senda mér höfnunarbréf. Og þeir taka það ekki fram á heimasíðu sinni í hverskonar námi styrkþegarnir eru svo ekki get ég huggað mig við það að ég hafi valið mér ósexí nám.

Þegar ég hef unnið umsóknir og sótt um styrki fyrir hönd vinnustaðarins míns hafa heimturnar hinsvegar verið góðar. Á ég að draga þá ályktun að ég sé óáhugaverð ung kona sem vinni hjá áhugaverðri stofnun?

Fleh... Ef það væri ekki of seint þá myndi ég hlaupa út í sjoppu núna að kaupa lottómiða til að reyna að greiða upp skuldirnar. Því það eru meiri líkur úr þessu á því ég fái stóra vinninginn en að þeim sem útdeila námsstyrkjum finnist eitthvað í mig spunnið.


Lúx litla er dáin

2008-06-15 13:43  Blog

Seint á föstudagkvöldið féll Lúx litla út um þakgluggagluggann í eldhúsinu og niður á götu. Hún hafði klifrað út um hann og stóð ofan á glerinu. Ég sá hana ekki, heyrði bara mjálmið þegar ég lokaði glugganum og hún hrapaði niður. Ég hljóp út og hún lá á gangstéttinni og reyndi að draga sig áfram á litlu framfótunum. Ég rauk með hana upp á dýraspítala, hún reyndist hryggbrotin og það var ekkert hægt að gera fyrir hana. Hún var svæfð morguninn eftir og ég gróf hana á fallegum stað úti í sveit. Ég held hún hafi ekki þjáðst mikið, hún missti allar tilfinningar fyrir neðan brotið og hún fékk róandi lyf og verkjalyf í sprautu á spítalanum. Hún malaði þegar ég strauk á henni höfuðið á meðan læknirinn skoðaði hana. Mér fannst erfiðast að þurfa að skilja hana eftir yfir nóttina.

Lúx litla var afskaplega góð kisa og hún reyndist mér afskaplega vel. Hún kom til mín á erfiðum tíma og gerði mikið til þess að dreifa athygli minni frá eigin sársauka. Lúx kom frá Kattholti, hún hafði verið send þangað í kassa eins og hver annar böggull með Herjólfi. Hún var vannærð og afskipt og morandi í eyrnamaur. Fyrst hélt ég hún væri líklega heyrnarlaus eða þroskaheft því að hún brást ekki á neinn hátt við umhverfi sínu og sýndi engin viðbrögð við hávaða eða hljóðum. Eftir sirka mánuð kom þó í ljós að hún hafi líklega bara verið svona afskaplega illa haldin. Hún braggaðist og stækkaði og þegar hún dó var hún orðin að afskaplega fínni kisu.

Lúx var þó alltaf mjög lítil. Hún var rétt rúmlega tvö kíló, helmingi léttari en systur hennar. Henni fundust bananar og melónur góður matur. Hún gat leikið sér endalaust að litlum leikfangamúsum og henni fannst gaman að tuskast við Hafmey. Hún átti það til að reyna að veiða tærnar á mér á morgnana. Hún var ekki mikið fyrir það að láta halda á sér en fannst afskaplega gott að láta klóra sér á hausnum. Ég sakna hennar afskaplega mikið og ég er búin að grenja eins og fáviti við það að sjá hana ekki á græna púðanum, að sjá hana ekki í stofuglugganum, að sjá hana ekki stelast til að pissa í vaskinn eða klóra í sófann. Þetta var alltof stuttur tími sem hún fékk að vera til.

Lúx borðar banana Lúx við kertaljós Kettir og túlípanar
Lúx
Lúx
Lúx
Lúx sleikir melónu


Sat úti í sumarkjól

2008-06-13 11:45  Blog

Brunninn barmur

Mig klæjar ennþá í sólbrunann. Úff hvað það er erfitt að vera svona yfirstéttarhvít! Takið eftir perlufestinni sem ég var með!

Annars þarf ég kannski að fara að æfa mig að vera utandyra. Ég og mamma erum nefnilega að fara í viku Hornstrandagöngu með Ferðafélagi Íslands í lok júlí!


Fjölmiðlafár

2008-06-12 11:16  Blog

Ég er öll í blöðunum í dag. Ályktun Sagnfræðingafélags Íslands fær góða athygli í Mogganum og er það vel. Hinsvegar er það ekki alveg eins vel að nýjasta greinin mín á Hugsandi varð til þess að 24 Stundir hefur í dag og í gær verið að vekja athygli á vefsöfnun Landsbókasafnsins og á meðan fréttirnar af henni eru vel unnar er leiðari blaðsins í dag fyrir neðan allar hellur.

Ég nenni ekki að kvóta svona bull en leiðarinn gengur í stuttu máli út á það að líkja vefsöfnuninn við innrás í einkalíf fólks og er skrifaður í barnalandsæsingsstíl. Um það hef ég svosem bara tvennt að segja. Í fyrsta lagi þá er Landsbókasafn ekki eini aðilinn sem safnar vefsíðum. Það er gert af langflestum þjóðbókasöfnum heims og einnig á alþjóðlegum skala af Internet Archive. Þetta gerir Landsbókasafnið heldur ekki af einhverjum dyntum heldur vegna þess að alþingi telur efni birt á vef vera útgefið efni og setti sérstök lög um að þetta skyldi gert. Það er því frekar tilgangslaust að tussast út í Landsbókasafn. Mögulega myndi það skila betri árangri að fara með eggjabakka niður á alþingi. Nema hvað alþingi er víst í sumarfríi og ég býst við að allir verði búnir að gleyma þessu í haust.

Í öðru lagi þá finnst mér 24 Stundir hér vera að pissa í skóinn sinn. Svona málflutningur er nefnilega bara til þess fallinn að ég fari að veifa bendiputtanum og fjargviðrast yfir því að daglega birta fjölmiðlar, án þess að biðja leyfis, brot úr bloggum. Brotin eru slitin úr samhengi og eru oft síður en svo til þess fallin að vera bloggaranum til heiðurs. Þar sem öll dagblöð eru varðveitt, aftur samkvæmt landslögum, á Landsbókasafnu, vinna blöðin þannig sjálf markvisst að því að varðveita ritstýrða mynd af bloggurum landsins. Það kaldhæðnislegasta er að bloggstuldarhorn 24 Stunda birtist einmitt beint fyrir neðan leiðarann.

Reyndar er leiðarinn mjög tvístígandi. Annars vegar er kvartað undan árás á einkalíf fólks, hinsvegar er því haldið fram að það að ekki sé geymt nægilega mikið af bloggsíðum.

Góður maður sagði mér í morgun frá því að einn ritstjóra Morgunblaðsins hefði sagt um leiðaraskrif að stundum þyrfti maður að míga þótt manni væri ekki mál. Og það vill þannig til að mér finnst einmitt þesskonar hlandlykt vera af leiðara Gunnhildar Örnu Gunnarsdóttur.


Það er komið sumar

2008-06-11 17:06  Blog

Ég sat í flegnum sumarkjól fyrir utan Þjóðminjasafnið í hádeginu í dag og svo mikið er sumarið að meyjarbarmurinn minn brann.

Klukkan þrjú var ég svo kölluð út í íspartý í boði vinnustaðarins. Framundan eru svo grillveislur hverja helgi.


Kjáni dagsins

2008-06-11 10:12  Blog

Ég ætla að gapa smá yfir kjánalegum málflutningi. Hlynur Einarsson, varaformaður Vöku tjáir sig í Fréttablaðinu í dag um styttan opnunartíma Vegamóta, Ölstofunnar og þriðja staðarins. Lesið...

Mér finnst mjög kjánalegt að stytta opnunartíma á skemmtistöðunum" segir Hlynur Einarsson, varaformaður Vöku. Eigendum þriggja skemmtistaða hafa borist bréf þar sem þeim er gert að loka fyrr um helgar en þeir hafa gert. ,,Það er betra að fólk sé jafnt og þétt að tínast úr bænum en að allir geri það á sama tíma" segir Hlynur. ,,Það yrði örugglega miklu meiri erill hjá lögreglu í því að sinna slagsmálum úti á götu en þeim sem dyraverðirnir geta stoppað inni á stöðunum." Hlynur segir að fólk sem búi í miðbænum viti af því að þar séu skemmtistaðir og læti fram eftir nóttu. ,,Það er enginn neyddur til að búa þarna og þú getur örugglega selt íbúð í 101 og fengið fína íbúð í öðru póstnúmeri".

Ok, látum það liggja á milli hluta að Hlyni finnst ekki mikilvægt að náð sé jafnvægi á milli hagsmuna íbúa og bareigenda í miðbænum. Það er ekki það sem mér finnst fáránlegt, ég hef heyrt það viðhorf svo oft áður að íbúum miðbæjarins sé bara nær að búa þar. Það sem mér finnst fáránlegt er að varaformaður Vöku, sem virðist vera hress ungur maður af myndinni að dæma, geri sér ekki grein fyrir því að flestir staðir í miðbænum eru einmitt opnir mun lengur en til þrjú og þessi breyting er einmitt til þess fallin að stuðla að jafnari tæmingu miðbæjarins. Væri ég blaðamaður hefði ég ýtt á delete og hringt í einhvern annan, mér hefði fundist vandræðalegt að undirstrika þá staðreynd að blöðin eyða iðulega heilmiklu plássi undir málflutnings fólks sem hefur ekki hundsvit á því sem það er að tala um.

Þess má geta að samkvæmt þjóðskrá býr Hlynur í úthverfi.


Eins en betra?

2008-06-10 11:23  Blog

Ég gekk fram hjá Nýlenduvöruverslun Hemma og Valda í gærkvöldi á leið heim frá systrunum. Það var stuð þar inni og mér fannst skrýtið að sjá inn um gluggana að borðin voru hlaðin vínglösum. Hljómalind sem var þarna áður var nefnilega edrústaður.

Ég ber blendnar tilfinningar í brjósti gagnvart Nýlenduvöruverslun Henna og Valda. Ég hef lesið blaðaviðtölin við þá og þeir virðast vera bestu skinn og spenntir að reka kaffihúsið. Þarna á víst allt að vera til sölu og þeir eru í samstarfi við Góða Hirðinn. Þetta er örugglega töff kaffihús og það lúkkaði í gærkvöldi eins og staður sem ég myndi fíla. En það truflar mig að þeir virðast engu að síður vera bara lítið breytt copy paste af starfsseminni sem þarna var á undan. Og þetta með að þeir ætli að reka markað í sumar í "Sirkús-portinu" truflar mig líka. Og eitthvað voru þeir í einhverju viðtalanna að tala um velvilja borgaryfirvalda sem hefðu endilega viljað hafa skemmtilega stemnningu á þessu svæði.

Ég skil ekki alveg þetta með að flytja starfssemi af svæðinu (Sirkus lokað, Hljómalind sagt upp leigu) til þess að flytja nákvæmlega eins starfssemi á svæðið sem dregur að 90% sama markhóp? En ég veit svo sem ekki nógu mikið um þetta allt til að hafa skoðanir á þessu. Þetta minnir mig samt soldið á það þegar Sólon var rænt og Súfistanum í Mál&Menningu bísað.

Vitið þið ekki eitthvað meira um þetta en ég? Er þetta eitthvað loðið eða er ég bara paranoid? Hvað á mér að finnst? Skoðanir óskast!


Myndir frá fínu Helsinkiferðinni

2008-06-08 15:51  Blog

Ég var svosem aldrei búin að segja ykkur frá Helsinkiferðinni minni svo að ég ætla að sýna ykkur nokkrar myndir frá henni. Tilefni ferðarinnar, eins og þið munið kannski, var ráðstefnan Nordic Alcohol and Drug researcher's Assembly. Þar hélt ég erindi og kynnti niðurstöður rannsóknar sem ég vann með Hildigunni Ólafsdóttir. Rannsóknin snerist um það hvaða gildi næturlífið og vínveitingastaðirnir hafa í lífi ungs fullorðins fólks. Hún verður birt í 51sta tímariti NAD sem verður temarit helgað rannsókn okkar og sambærilega unnum rannsóknum um sama efni frá hinum Norðurlöndunum. Ráðstefnan var mjög skemmtileg og fjölbreytt enda var hún ekki bundin einu tema heldur gekk út á að kynna nýjustu rannsóknir. Það var líka áhugavert að kynnast því hversu fjölbreyttur sá hópur fólks sem fæst við skandinavískar áfengisrannsóknir er og bakgrunnur fræðimannanna ólíkur. Ég hitti heilmikið af heillandi fólki þarna. Svo var staðsetningin líka frábær, hótelið var í skóglendi niðri við sjó. Fyrsta kvöldið var sánupartí og ég lét mig hafa það að hlaupa eftir þessari bryggju og busla í Finnlandsflóanum. Sem var jafnskemmtilegt og það var kalt.

Séð út á Finnlandsflóann

Restina af tímanum í Finnlandi dvaldi ég hjá Tötju vinkonu minni. Hún býr í úthverfi sem heitir Malmi. Það er ólíkt miðbæ Helsinki og frekar smábæjarlegt. Ég skoðaði Helsinki samviskusamlega vopnuð nördalega menningarsagnfræðilegri ferðahandbók sem samstarfsfólk mitt hafði verið svo elskulegt að gefa mér í þrítugsafmælisgjöf.

Finnska þjóðminjasafnið, Helsinki

Ég heimsótti líka finnsku þjóðfræðastofnunina þar sem ég skoðaði mig um sem gestur Miðstöðvar munnlegrar sögu og tók viðtal fyrir Sögu við Ullu-Maiju Peltonen, finnska fræðikonu sem hefur unnið mikið og merkilegt starf með munnlegar heimildir. Ég hafði hitt hana stuttlega áður, á norræna sagnfræðiþinginu 2007 þar sem við héldum erindi í sömu málstofu, og það var mjög gaman að fá tækifæri til að spjalla við hana vítt og breitt um sagnfræði og munnlegar heimildir.

Í Katajokka hverfinu, Helsinki

Myndin hér að ofan er tekin í Katanjokka hverfinu. Þegar ég kom fyrst til Helsinki gengum við Sigga stuttan spöl inn í þetta hverfi. Okkur fannst það sérstaklega fallegt og húsin ævintýraleg. Í þessari heimsókn tók ég mér góðan göngutúr um þessar götur. Þegar ég fletti ferðabókinni minni um kvöldið komst ég að því að einmitt hér er múmínmamman Tove Janson alin upp. Sem mér fannst ekki skrýtið því ég get svoleiðis svarið það að ég sá húsið í múmíndal speglast í einum glugganum.

Niðursoðið bjarndýrakjöt

Í fríhöfninni í Helsinki getur maður keypt niðursoðið bjarndýrakjöt. Til þess að mega flytja góðgætið út fyrir EU þarf hinsvegar leyfi frá Finnsku umhverfismálastofnuninni. Ég hafði ekki slíkt leyfi og varð því að láta mér nægja að kaupa hreindýrasalamí.

Hundrað ára spennitreyja

Ég heimsótti mjög skemmtilega sýningu í Hakasalmi Villa. Hún bar yfirskriftina Alvöru borgari. Var þar annars vegar fjallað um þróun borgaralegra réttinda hinsvegar hina ýmsu þjóðfélagshópa og hvernig samfélagið og yfirvaldið hefur í gegnum tíðina mætt þörfum þeirra. Sýningin var afar skemmtileg hvað framsetningu varðar og eitt trikkið sem notast er við er að leyfa gestum að setja sig í spor fólksins sem fjallað er um. Hér að ofan sjáið þið hvernig ég tek mig út sem kvenkyns vistmaður á geðveikrahæli fyrir hundrað árum eða svo.

Antíkmúnínálfar á finnska Þjóðminjasafninu

Tatja á Zetor

Zetor er fyndinn staður. Í stað túristanna sem ættu með réttu að vera í meirihluta eru það miðaldra Finnar sem eiga staðinn. Karlmennirnir halla sér þungbrýndir með drykk í hendi upp að Zetor traktorum og fjósbásum, konurnar eru með blásið hár og flissa í vinkonuhópum. Tónlistin er Júróvisjóneitísdiskó í bland við finnskar dramasöngsperlur. Þegar líður á kvöldið fyllist dansgólfið af fólki sem dansar misvel. Staðurinn er í eigu Aki Kaurismaki. Hér að neðan er Tatja á Zetor en hún lét sig hafa það að fara þangað með mér.

Dómkirkja heilags Nikulásar, Helsinki

Háskólabókasafnið í Helsinki

Myndin hér að ofan er tekin í háskólabókasafninu sem eins og svo margt annað í Helsinki er hannað af Carl Ludvig Engel (1778-1840). Bókasafnið var opnað árið 1833 og er fyrirmyndin rómversku almenningsböðin sem reist voru í tíð Díókletíusar. Byggingin er þó töluvert tæknivædd á mælikvarða síns tíma, um húsið liggja pípur sem leiða loft sem hitað er í kjallaranum. Bókasafnið samanstendur af þrem stórum lestrarsölum, girtum rómverskum súlum og stórri kúpólu þar sem hringlaga hæðir raðast hver ofan á aðra og enda í grænu gleri. Ég gekk í heilan klukkutíma um safnið, þræddi svalir og útskorna tréstiga, hallaði mér fram af efstu hæðinni undir kúpólunni og lét mig svima.

-Lestarstöðin í Helsinki

Mér finnst lestarstöðin í Helsinki ferlega flott. Hún er hönnuð af Saarinen, Gesellius og Lindgren, arkitektum sem saman stofnuðu samnefnda arkitektúrstofu árið 1896 og voru gríðarlega áhrifamiklir bæði innan og utan Finnlands. Heimssýninganördar vita að finnski skálinn sem vakti athygli á heimsýningunni í París árið 1900 var þeirra verk. Fyrirtækið starfar enn í dag undir sama nafni, karlarnir hinsvegar liggja dauðir og grafnir og heimili þeirra hafa verið gerð að minningarsöfnum um verk þeirra.

Vinna við lestarstöðina hófst árið 1904 og var byggingu hennar lokið árið 1919. Innblásturinn kemur beint úr Kalevala en átti á sama tíma einnig að tákna hið nýja og nútímalega Finnland. Á kvöldin lýsast kúlurnar sem risarnir halda á upp. Á næturnar um helgar er svæðið í kringum lestarstöðina finnskt Austurstræti.

Það er hægt að skoða allar myndirnar sem ég tók hér


Missijón akkommplisjd!

2008-06-08 15:29  Blog

Í gær birti eitt blaðanna frétt um að það væri stórhættulegt að borða of lítið salt. Það fundust mér góðar fréttir.

Planið um það að bæta fyrir dugnað gærdagsins með því að fara á barinn og hrynja í það gekk ljómandi vel upp. Ég fór með Kötlu, Veru og vini Kötlu á Santa María og þaðan þræddum við svo bari. Það var mikið hlegið og ég hef í dag greitt skemmtanareikninginn með því að staulast skelþunn um húsið. Ég ætla að sjá til hvort að göngutúr í góða veðrinu hressi mig ekki við. Vonandi verð ég ekki étin af nágrannabörnunum mínum sem hafa síðasta klukkutímann dunað sér við að leika spangólandi varúlfa fyrir neðan gluggann minn.


Laugardagsmorgunn

2008-06-07 10:58  Blog

Planið í morgun var að sofa út. Engin útburður í fyrramálið, hugsaði ég dauðfegin þegar ég kom slöpp og þreytt heim úr vinnunni í gær. Ég fór í Bónus, eyddi kvöldinu í smá tiltekt, eldaði mér góðan kvöldmat, lá í freyðibaði, gerði út af við hárin á fótleggjunum á mér, horfði á Southparkþátt og skreið svo snemma upp í rúm með góða bók. Ég var sofnuð fyrir klukkan tólf með vekjaraklukkuna stillta á tíu.

En klukkan hálfsjö í morgun byrjaði sjálfvirk áminningarþjónusta Morgunblaðsins að hringja í mig. Og eftir samtal við blaðberadeild áttaði ég mig á því að ég hafði tekið feil á dagsetningum og að það var dagurinn í dag en ekki gærdagurinn sem er síðasti útburðardagurinn í bili. Konan í símanum var reyndar ósköp samúðarfull og sagðist skyldu redda þessu. Og ég reyndi að sofna aftur en var bara glaðvakandi svo að tíu mínútum seinna hringdi ég bara í blaðberadeildina og sagðist vera farin á fætur.

Núna er klukkan ekki orðin ellefu en ég er búin að bera út, borða stóran morgunmat, lesa blöðin, gera allsherjarlaugardagshreingerninguna, baða mig, leika við kisurnar og svara tölvupóstum sem ég hef hummað fram af mér síðustu daga. Sem er auðvitað heldur sjúkt. Mér sýnist ég vera nokkurnvegin laus við hóstann og slappleikann og mun því tryggja það að morgundagurinn fari ekki í slíkan dugnað með því að fara á barinn í kvöld og halda mig þar fram undir morgun.


Bíóblogg

2008-06-06 11:38  Blog

Ég hafði ekki ætlað að fara á Sex and the City bíómyndina en þegar Lora, Brynja og Marcia buðu mér með sér þá fannst mér félagsskapurinn of góður og of spennandi að sjá Brynju á steypinum (mjög sætt!) til þess að réttlæta ekki bíóferðina fyrir mér. Og það var svosem ágætt að sjá Beðmálafereykið aftur þótt ég sé ekki viss um að bíómyndarformið henti hugmyndinni. Og ég hef eiginlega ekki taugar í það ennþá að horfa á myndir sem snúast um brúðkaup og svekkelsi. En ég hafði gaman af því hvað myndin var sjálfhæðin.

Annars er ég orðin voðalega leið á því að hósta og vera þreytt. Í gær og daginn þar áður var ég þar að auki með smá hitavellu. Mér er að batna en það gerist bara aaaaaallltof hægt fyrir minn smekk.

Talandi um bíómyndir þá horfðum við Sigga og Kiddý á True Romance síðasta mánudag. Ég hef ekki séð hana síðan hún var í bíó en hún er ennþá jafn frábær. Og ég verð að monta mig af kjúklingnum sem ég eldaði fyrir þær...

Mánudagsmatur Mánudagsmatur


Birt víðar

Fræðalestur

Fræðavefur

Fræðaviðburður

User:
Pass:

Mússíkin

Vefsíðan

Viðburðurinn

Bíóið

Oh, Wicked Wanda! Unofficial Site


(C) Copyright 2005, Unnur María Bergsveinsdóttir. Ekki kvóta mig án tilvísunar!